Þorvaldur gerir tvær breytingar

Þorvaldur Örlygsson þjálfari U18 ára landsliðsins.
Þorvaldur Örlygsson þjálfari U18 ára landsliðsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þorvaldur Örlygsson þjálfari U18 ára landsliðs karla í knattspyrnu hefur gert tvær breytingar á landsliðshópnum sem mætir Lettum í tveimur vináttuleikjum ytra í vikunni.

Þorvaldur hefur valið Arnór Gauta Jónsson úr Aftureldingu og Eyþór Aron Wöhler úr ÍA í staðinn fyrir þá Valgeir Valgeirsson, HK, og Jón Gísla Eyland Gíslason, sem leikur með ÍA. Þeir hafa  báðir verið í byrjunarliðum sinna félaga í Pepsi Max-deildinni en HK og ÍA eiga leiki þar á sunnudag og mánudag.

Fyrri leikurinn við Lettana fer fram á föstudaginn og síðari leikurinn verður á sunnudaginn en báðir fara þeir fram í Riga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert