Þróttur Vogum í toppbaráttuna

Þróttarar fagna.
Þróttarar fagna. Ljósmynd/Facebook-síða Þróttar Vogum

Þróttur Vogum vann dramatískan 4:3-útisigur á Kára í fyrsta leik 12. umferðar 2. deildar karla í fótbolta í kvöld. Sigurmarkið kom í uppbótartíma. 

Miroslav Babic skoraði eina mark fyrri hálfleiks fyrir Þrótt en leikurinn lifnaði heldur betur við í seinni hálfleik. 

Hlynur Sævar Jónsson jafnaði fyrir Kára á 55. mínútu en þremur mínútum síðar kom Guðmundur Marteinn Hannesson Þrótti aftur yfir. Ingvar Ástbjörn Ingvarsson kom Þrótti í 3:1 og bjuggust þá flestir við þægilegum útisigri. 

Hlynur Sævar skoraði hins vegar sitt annað mark á 66. mínútu og Andri Júlíusson jafnaði í 3:3 með marki úr víti á 86. mínútu. Þróttarar sættu sig ekki við jafntefli og Alexander Helgason skoraði dramatískt sigurmark á fjórðu mínútu uppbótartímans. 

Þróttur er nú í þriðja sæti með 19 stig, einu stigi minna en Selfoss og þremur stigum minna en topplið Leiknis F. Kári er í ellefta og næstneðsta sæti með ellefu stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert