Dagný ekki í slag Íslendingaliðanna

Dagný Brynjarsdóttir fagnar með Portland Thorns.
Dagný Brynjarsdóttir fagnar með Portland Thorns.

Það verður engin Dagný Brynjarsdóttir þegar Íslendingaliðin Utah Royals og Portland Thorns mætast í bandarísku A-deildinni í fótbolta í nótt. Dagný er mætt til Íslands í eigið brúðkaup. 

Þetta kemur fram á heimasíðu Portland Thorns í dag í viðtali við Mark Parsons, þjálfara liðsins. Portland gaf Dagnýju leyfi á að yfirgefa félagið á þessum tímapunkti, þar sem mikið af leikmönnum eru að koma til baka eftir HM í Frakklandi. 

Portland Thorns er í öðru sæti deildarinnar með 22 stig, eins og NC Courage sem er í efsta sæti. Utah Royals er í fimmta sæti, einu stigi á eftir Washington sem er í fjórða sæti. 

Fjögur efstu liðin mætast í úrslitakeppni um bandaríska meistaratitilinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert