Orri framlengdi í Árbænum

Orri Sveinn Stefánsson skrifaði undir þriggja ára samning við Fylki …
Orri Sveinn Stefánsson skrifaði undir þriggja ára samning við Fylki í vikunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumaðurinn Orri Sveinn Stefánsson skrifaði á dögunum undir nýjan þriggja ára samning við Fylki en þetta kemur fram á Facebook-síðu félagsins. Samningurinn gildir til ársins 2022 en Orri er uppalinn í Árbænum.

Þessi 23 ára gamli varnarmaður hefur komið við sögu í tíu leikjum með Fylkismönnum í Pepsi Max-deildinni í sumar. Alls á hann að baki 26 leiki fyrir Fylki í efstu deild þar sem hann hefur skorað eitt mark.

Hann lék með Elliða á láni sumarið 2013 og Hugin á láni frá árinu 2015 til ársins 2016 en hefur leikið með Fylkismönnum frá árinu 2016. Þá á hann að baki sex landsleiki fyrir U21 árs landslið Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert