Bologna kaupir Andra Fannar

Andri Fannar Baldursson.
Andri Fannar Baldursson. Ljósmynd/Breiðablik

Ítalska félagið Bologna hefur fest kaup á miðjumanninum Andra Fannari Baldurssyni frá Breiðabliki.

Andri Fannar fór á lán til félagsins í janúar, en Bologna átti forkaupsrétt á honum og ákvað ítalska félagið að festa kaup á honum en Andri er 17 ára gamall.

Andri Fannar spilaði fjóra leiki með U17 ára liði Bologna á síðasta keppnistímabili og skoraði þrjú mörk ásamt því að leggja upp fjögur áður en hann var færður upp í varalið Bologna. Á komandi tímabili stendur til að Andri Fannar muni æfa og spila með varaliði Bologna en Andri hefur þó einnig fengið að æfa með aðalliði félagsins.

Andri Fannar lék sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni í lokaumferðinni síðasta sumar aðeins 16 ára og er á meðal yngstu leikmanna til þess að spila í efstu deild með Blikum frá upphafi. Andri Fannar hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og hefur leikið 29 landsleiki og skorað 4 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert