Færeyski miðilinn in.fo greinir frá því í dag að Ragnar Joensen, stjórnarformaður færeyska knattspyrnufélagsins HB, sé vongóður um að halda Heimi Guðjónssyni sem þjálfara liðsins. Segir Ragnar að viðræður séu í gangi um framlengingu á samningi Heimis.
Ragnar segir einnig að stjórn HB sé bjartsýn á að Heimir muni framlengja og að fréttir þess efnis að Heimir sé á heimleið komi honum á óvart.
Mbl.is greindi frá því fyrr í dag að Heimir muni snúa heim eftir að keppni lýkur í færeysku deildinni í október.
Hafa félög hér á landi áhuga á að fá Heimi hug á að ræða við þjálfarann þegar hann kemur til landsins.