Þrettán atvinnumenn í æfingahópnum

Valgeir Valgeirsson er í æfingahópnum.
Valgeir Valgeirsson er í æfingahópnum. mbl.is/Árni Sæberg

Þorvaldur Örlygsson, landsliðsþjálfari U19 ára landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið hópinn sem tekur þátt í æfingum dagana 2.-6. september. Æfingarnar fara fram á Framvelli í Safamýri og eru liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM 2020.

Þar leikur Ísland í riðli með Albaníu, Belgíu og Grikklandi og er leikið dagana 13.-19. nóvember í Belgíu. Fyrsti leikur Íslands verður gegn Belgíu 13. nóvember.

Alls eru þrettán atvinnumenn í hópnum og þá sex leikmenn í hópnum sem leika með liðum í efstu deild.

Róbert Orri Þorkelsson | Afturelding
Andri Fannar Baldursson | Bologna
Karl Friðleifur Gunnarsson | Breiðablik
Kristall Máni Ingason | FC København
Hákon Haraldsson | FC København
Danijel Dejan Djuric | FC Midtjylland
Sigurjón Daði Harðarson | Fjölnir
Jóhann Árni Gunnarsson | Fjölnir
Arnór Ingi Kristinsson | Fylkir
Hákon Rafn Valdimarsson | Grótta
Orri Hrafn Kjartansson | Heerenveen
Valgeir Valgeirsson | HK
Jón Gísli Eyland Gíslason | ÍA
Ísak Bergmann Jóhannesson | IFK Norrköping
Oliver Stefánsson | IFK Norrköping
Davíð Snær Jóhannsson | Keflavík
Vuk Óskar Dimitrijevic | Leiknir R.
Atli Barkason | Norwich City
Ísak Snær Þorvaldsson | Norwich City
Teitur Magnússon | OB Odense
Jökull Andrésson | Reading
Andri Lucas Guðjohnsen | Real Madrid
Mikael Egill Ellertsson | SPAL
Sölvi Snær Guðbjargarson | Stjarnan
Valgeir Lundal Friðriksson | Valur
Þórður Gunnar Hafþórsson | Vestri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert