Keflavík framlengir við lykilmenn

Adam Árni Róbertsson hefur skorað fimm mörk í sjö leikjum …
Adam Árni Róbertsson hefur skorað fimm mörk í sjö leikjum fyrir Keflavík í sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Adam Árni Róbertsson og Rúnar Þór Sigurgeirsson hafa framlengt samninga sína við knattspyrnudeild Keflavíkur en þetta kemur fram á Facebook-síðu félagsins. Þeir skrifa báðir undir þriggja ára samning við félagið en þeir hafa leikið stórt hlutverk með liðinu í 1. deildinni, Inkasso-deildinni, í sumar.

Adam Árni hefur skorað fimm mörk í sjö leikjum í 1. deildinni í sumar en hann á að baki 45 leiki fyrir Keflavík þar sem hann hefur skorað 10 mörk. Þá hefur Rúnar Þór komið við sögu í ellefu deildarleikjum með liðinu í sumar þar sem hann hefur skorað þrjú mörk. Keflavík er í sjötta sæti deildarinnar með 25 stig en liðið féll úr efstu deild síðasta sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert