Hættur í Breiðabliki

Guðmundur Böðvar Guðjónsson hefur komið við sögu í sex deildarleikjum …
Guðmundur Böðvar Guðjónsson hefur komið við sögu í sex deildarleikjum Blika í sumar. mbl.is/

Guðmundur Böðvar Guðjónsson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Breiðablik en þetta staðfesti hann í samtali við fótbolta.net í dag. Guðmundur hefur ekki átt fast sæti í liði Blika á þessari leiktíð en hann kom inn á sem varamaður á 86. mínútu í 1:1-jafntefli liðsins gegn Stjörnunni í 20. umferð deildarinnar. Hann var ekki í leikmannahóp liðsins í 1:1-jafnteflinu gegn ÍBV í síðustu umferð.

„Hlutverkið fannst mér aðeins hafa breyst, spiltíminn sama sem enginn orðinn og þess vegna fór ég þess á leit við klúbbinn að stoppa núna,“ sagði Guðmundur við Fótbolta.net í dag. Guðmundur hefur komið við sögu í sex leikjum með Breiðabliki í sumar. Hann er uppalinn hjá ÍA en kom til Breiðabliks frá ÍA haustið 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert