Kári kominn í níu manna elítuhóp Íslands

Kári Árnason hefur betur gegn Antoine Griezmann í leiknum gegn …
Kári Árnason hefur betur gegn Antoine Griezmann í leiknum gegn Frökkum í gærkvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kári Árnason varð í gærkvöld níundi landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu karla frá upphafi til að spila 80 leiki fyrir A-landslið Íslands.

Hann lék áttugasta landsleikinn gegn Frökkum á Laugardalsvellinum og þetta er annar leikurinn í röð þar sem íslenskur landsliðsmaður nær þessum áfanga en Birkir Bjarnason spilaði sinn áttugasta landsleik gegn Albaníu í síðasta mánuði.

Þessir níu leikjahæstu landsliðsmenn Íslands frá upphafi eru eftirtaldir:

104 Rúnar Kristinsson
  91 Ragnar Sigurðsson
  90 Birkir Már Sævarsson
  89 Hermann Hreiðarsson
  88 Eiður Smári Guðjohnsen
  87 Aron Einar Gunnarsson
  81 Birkir Bjarnason
  80 Guðni Bergsson
  80 Kári Árnason

Sá tíundi leikjahæsti er Jóhann Berg Guðmundsson sem spilaði sinn 75. landsleik í gærkvöld og fór með því framúr þeim Birki Kristinssyni og Brynjari Birni Gunnarssyni, en ljóst er að 80 leikja hópurinn mun ekki stækka frekar á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert