Þetta svíður fyrir liðið og mig

Jóhann Berg Guðmundsson sækir gegn Clément Lenglet í byrjun leiksins …
Jóhann Berg Guðmundsson sækir gegn Clément Lenglet í byrjun leiksins gegn Frökkum á föstudag, áður en hann meiddist. mbl.is/Eggert

„Leikmaðurinn Jóhann Berg er ekkert smá mikilvægur fyrir íslenska landsliðið og hefur sýnt það,“ sagði Alfreð Finnbogason um herbergisfélaga sinn úr íslenska landsliðinu en Jóhann Berg Guðmundsson meiddist gegn Frökkum á föstudag og er úr leik næstu vikurnar.

Jóhann verður því ekki með gegn Andorra í undankeppni EM í fótbolta annað kvöld og hugsanlega ekki heldur með Tyrklandi og Moldóvu í næsta mánuði. Alvarleiki meiðsla hans á eftir að koma betur í ljós, að sögn Erik Hamrén landsliðsþjálfara.

„Án þess að vanvirða aðra í hópnum þá höfum við ekki marga leikmenn eins og Jóhann, sem geta gert hlutina með boltann, komið frá kantinum og alltaf dregið 2-3 leikmenn að sér,“ sagði Alfreð, spurður um félaga sinn, en benti jafnframt á mikilvægi Jóhanns utan vallar:

„Persónan Jóhann Berg er líka gríðarlega mikilvæg í þessum hópi. Á öllum sviðum er þetta gríðarlegur missir. Þetta er líka mikill missir fyrir mig persónulega, núna er ég einn í herbergi, þannig að á mörgum sviðum svíður þetta fyrir liðið og mig. Vonandi fær hann smátíma til að koma sér almennilega á skrið. Hann er örugglega ekki ánægður með hvernig þetta er búið að vera síðustu ár, mikið meiddur í kringum landsleiki, og það er gríðarlegur missir fyrir okkur að öllu leyti,“ sagði Alfreð.

Alfreð Finnbogason sat blaðamannafund Íslands í dag ásamt Erik Hamrén …
Alfreð Finnbogason sat blaðamannafund Íslands í dag ásamt Erik Hamrén landsliðsþjálfara. Þess má vænta að hann verði í byrjunarliðinu gegn Andorra á morgun. mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert