Meistararnir kynna miðjumanninn til leiks

Rúnar Kristinsson þjálfari KR og Emil Ásmundsson
Rúnar Kristinsson þjálfari KR og Emil Ásmundsson Ljósmynd/@KRreykjavik

Emil Ásmundsson var í dag formlega kynntur til leiks sem nýr leikmaður Íslandsmeistara KR í knattspyrnu en hann kemur til Vesturbæjarliðsins frá Fylki. KR-ingar skýrðu frá þessu á Twitter fyrir stundu.

Fram kom strax að Íslandsmótinu loknu að Emil myndi semja til þriggja ára við KR-inga. Hann er 24 ára gamall, uppalinn hjá Fylki, en var í nokkur ár í röðum Brighton á Englandi. Hann missti af stórum hluta síðasta tímabils vegna meiðsla en skoraði eitt mark í átta leikjum með Fylki í úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert