Skagastrákarnir skoruðu tólf í Eistlandi

ÍA fór áfram með látum.
ÍA fór áfram með látum. Ljósmynd/ÍA

ÍA tryggði sér áframhaldandi þátttöku í unglingadeild UEFA með látum er liðið vann 12:1-sigur á Levadia Tallinn í síðari leik liðanna í 1. umferðinni í dag. ÍA vann fyrri leikinn á heimavelli 4:0 og einvígið samanlagt 16:1. 

Eyþór Aron Wöhler skoraði fjögur mörk fyrir ÍA, Gísli Laxdal Unnarsson gerði þrjú og Sigurður Hrannar Þorsteinsson, Brynjar Snær Pálsson, Elís Dofri Gylfason, Aron Snær Guðjónsson og Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson komust einnig á blað. 

ÍA mætir enska liðinu Derby í næstu umferð. Leikirnir fara fram 6. og 27. nóvember næstkomandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert