Fylkismenn semja við Willard

Harley Willard er orðinn leikmaður Fylkis.
Harley Willard er orðinn leikmaður Fylkis. Ljósmynd/Fylkir

Fylkir gekk í dag frá samningi við Harley Willard. Kemur hann til félagsins frá Víkingi Ólafsvík. Willard lék gríðarlega vel með Víkingi á síðustu leiktíð og skoraði 11 mörk í 22 leikjum. 

Var hann kosinn í lið ársins af þjálfurum og fyrirliðum í deildinni. Willard gerir samning út tímabilið 2021. Willard þótti einn efnilegasti leikmaður Englands um tíma er hann var í unglingastarfi Southampton. 

Andrés Már Jóhannesson hefur svo framlengt samningi sínum við Fylki. Hann hefur spilað 238 leiki í deild og bikar fyrir félagið og skorað í þeim 20 mörk. Andrés á einn A-landsleik að baki.

„Þetta eru gleðifréttir fyrir okkur Fylkisfólk. Harley er ótrúlega spennandi leikmaður sem við höfum mikla trú á að muni reynast okkur vel. Að sama skapi eru það frábær tíðindi að Addi sé að framlengja við okkur enda þar á ferðinni frábær leikmaður og félagsmaður,“ segir Hrafnkell Helgi Helgason, formaður mfl.ráðs Fylkis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert