Njarðvíkingar sækja liðsstyrk

Atli Freyr er genginn til liðs við Njarðvík.
Atli Freyr er genginn til liðs við Njarðvík. Ljósmynd/Heimasíða Njarðvíkur

Atli Freyr Ottesen Pálsson er genginn í raðir Njarðvíkur frá Víði Garði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem birt var á heimsíðu Njarðvíkur í gær.

Atli er fyrsti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Njarðvík eftir að Mikael Nikulásson, nýráðinn þjálfari liðsins, tók við stjórnartaumunum nú á dögunum. Líkt og fyrr segir lék leikmaðurinn með Víði Garði á síðasta tímabili, en þar áður hafði hann verið á mála hjá Njarðvík.

„Við bjóðum Atla Frey velkominn í okkar raðir á ný,” segir í tilkynningu félagsins. Atli lék með liðinu árin 2017 og 2018 og spilaði alls 35 leiki. Í þeim skoraði hann átta mörk. Njarðvík féll úr Inkasso-deild á síðasta tímabili og leikur í 2. deild næsta sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert