Stýrir Hagi Rúmenum á Íslandi?

Gheorghe Hagi
Gheorghe Hagi AFP

Eftir að hafa mistekist að koma Rúmeníu beint á EM karla í fótbolta er Cosmin Contra hættur sem þjálfari liðsins.  Rúmenía mætir Íslandi í undanúrslitum EM-umspilsins.

Contra hafði stýrt Rúmeníu í rúm tvö ár en rúmenska knattspyrnusambandið ætlar að gefa sér tvær vikur til að ráða nýjan þjálfara.

Goðsagnirnar Gheorghe Hagi og Dan Petrescu eru sagðar koma til greina, ásamt Mirel Radoi, þjálfara U21-landsliðsins, sem þykir líklegastur til að fá starfið. sindris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert