Fishley áfram í Garðabænum

Shameeka Fishley verður áfram í Garðabænum næsta sumar.
Shameeka Fishley verður áfram í Garðabænum næsta sumar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnukonan Shameeka Fishley leikur áfram með Stjörnunni í úrvalsdeild kvenna næsta sumar en þetta staðfesti félagið á Twitter-síðu sinni í dag. Fishley skrifaði undir samning við Garðbæinga sem gildir út næsta tímabil.

Fishley gekk til liðs við Stjörnuna um mitt síðasta sumar en hún er 26 ára gamall enskur sóknarmaður. Hún hefur einnig leikið með ÍBV og Sindra hér á landi. Hún á að baki 23 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað fimm mörk.

Stjarnan endaði í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð með 23 stig, stigi meira en Fylkir sem endaði með 22 stig. Kristján Guðmundsson tók við þjálfun liðsins haustið 2018 og hann stýrir liðinu áfram næsta sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert