Selfoss fær reyndan framherja frá Bandaríkjunum

Tiffany McCarty í leik með Houston Dash í bandarísku atvinnudeildinni.
Tiffany McCarty í leik með Houston Dash í bandarísku atvinnudeildinni.

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska leikmanninn Tiffany McCarty og mun hún leika með kvennaliði félagsins í sumar.

McCarty er 29 ára framherji sem hefur stærstan hluta ferilsins leikið í bandarísku atvinnumannadeildinni, með Washington Spirit, Houston Dash og FC Kansas City. Þá hefur hún einnig leikið með Albirex Ladies í japönsku úrvalsdeildinni og Medkila IL í efstu deild í Noregi.  

Tiffany McCarty.
Tiffany McCarty.


McCarty á að baki landsleiki með yngri landsliðum Bandaríkjanna, U17, U18 og U20 og síðast með U23 ára liðinu árið 2013. Í háskólaboltanum lék McCarty með sterku liði Florida State og á enn þá markamet skólans þar sem hún skoraði 63 mörk í 98 leikjum.

„Ég er ótrúlega lukkulegur með að við höfum landað þessum leikmanni. Við erum búin að vera að leita að framherja og ég held að við séum að veðja á réttan hest núna, að fá leikmann með reynslu. Þetta er mjög spennandi leikmaður sem kann leikinn og ég held að hún muni passa vel inn í íslensku deildina enda lítur hún út fyrir að vera kraftmikil og dugleg,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, í fréttatilkynningu frá félaginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert