Valsmenn ekki í vandræðum með Vestra

Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði tvö fyrstu mörk Vals.
Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði tvö fyrstu mörk Vals. Ljósmynd/Haraldur Jónasson/Hari

Valur vann öruggan 5:0-sigur á Vestra er liðin mættust í 4. riðli A-deildar Lengjubikars karla í fótbolta á Origo-vellinum á Hlíðarenda í dag. 

Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði bæði mörk Vals í fyrri hálfleik og var staðan í leikhléi 2:0.

Sigurður Egill Lárusson bætti við þriðja marki Vals á 57. mínútu og danski framherjinn Patrick Pedersen innsiglaði fimm marka sigur Valsmanna með tveimur mörkum á síðustu átta mínútunum. 

Stjarnan hafði betur gegn Fjölni í sama riðli í gær, 2:0. Valur og Stjarnan eru því bæði með þrjú stig en Fjölnir og Vestri án stiga. ÍBV og Víkingur Ólafsvík eru í sama riðli og mætast á Eimskipsvellinum í Laugardalnum klukkan 14. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert