Landsliðskona Pú­er­tóríkó í Aftureldingu

Kelley Johnson er orðin leikmaður Aftureldingar og er hér ásamt …
Kelley Johnson er orðin leikmaður Aftureldingar og er hér ásamt Júlíusi Júlíussyni þjálfara. Ljósmynd/Afturelding

Knattspyrnudeild Aftureldingar hefur gengið frá samningi við Kelley Johnson, landsliðskonu frá Púertóríkó. 

Johnson er 27 ára miðvörður sem lék með East Carolina í bandaríska háskólaboltanum, áður en hún hélt til Svíþjóðar og lék með Skövde í næstefstu deild. 

Afturelding hafnaði í fimmta sæti í 1. deild á síðustu leiktíð með 21 stig úr 18 leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert