KSÍ frestar öllum leikjum

Guðni Bergsson er formaður KSÍ.
Guðni Bergsson er formaður KSÍ. Ljósmynd/Haraldur Jónasson/Hari

Knattspyrnusamband Íslands tilkynnti í dag að öllum viðburðum innan sambandsins yrði frestað frá og með deginum í dag og næstu fjórar vikurnar vegna samkomubannsins sem tekur gildi á sunnudag. 

Í tilkynningu frá KSÍ í dag hvetur sambandið aðildarfélög til að fara í öllu eftir tilmælum stjórnvalda varðandi útfærslu á sínu starfi, viðburðum og æfingahaldi. 

Frestun á leik Íslands og Rúmeníu í umspili um sæti á EM hefur ekki verið staðfest og mun það ráðast á fundi UEFA næstkomandi þriðjudag og beðið er niðurstöðu þess fundar. 

Níu leikir voru á dagskrá í Lengjubikarnum í dag en þeim hefur öllum verið frestað. 

Yfirlýsing KSÍ: 

Íslensk yfirvöld hafa ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur (samkomubann) frá og með miðnætti sunnudaginn 15. mars. Samkomubannið gildir í fjórar vikur frá þeim tímapunkti og nær yfir samkomur þar sem fleiri en 100 manns koma saman. Á viðburðum þar sem færri koma saman er gert ráð fyrir því að tveir metrar séu milli fólks.

Vegna þessa ákvað stjórn KSÍ á fundi sínum í dag að fresta öllum leikjum á vegum KSÍ, sem og landsliðsæfingum og tengdum viðburðum á fyrrgreindu tímabili. Ákvörðunin tekur gildi frá og með deginum í dag, 13. mars. Stjórn KSÍ hvetur aðildarfélögin til að fara í öllu eftir tilmælum stjórnvalda varðandi útfærslu á sínu starfi, viðburðum og æfingahaldi. 

Ákvörðun um hvort umspilsleik A landsliðs karla um mögulegt sæti í lokakeppni EM 2020, og öðrum landsleikjum sem áætlaðir eru dagana 23.-31. mars næstkomandi, verði frestað, bíður niðurstöðu fundar UEFA sem fram fer á þriðjudag. Á fundinum verða fulltrúar allra aðildarlanda UEFA, auk fulltrúa evrópskra félagsliða og annarra hagsmunaaðila.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert