Áfram Ísland - KSÍ birtir æfingar og hvatningu á myndböndum

Knattspyrnusamband Íslands hefur hafið birtingu myndbanda á samfélagsmiðlum sínum þar sem um er að ræða æfingar sem krakkar geta framkvæmt ein og sér eða í litlum hópum, og hvatningarmyndbönd þar sem landsliðsfólk hvetur iðkendur til að halda áfram að hreyfa sig og æfa reglulega.

Verkefnið er kallað „Áfram Ísland“ og myndböndin munu birtast daglega á instagram- og facebooksíðum KSÍ en þau verður einnig að finna á youtubesíðu sambandsins.

mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert