Fyrirliðinn hvetur ungt fólk til dáða

Sara Björk Gunnarsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir Ljósmynd/Pavel Jirik

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, situr ekki auðum höndum þrátt fyrir að geta ekki keppt og æft í Þýskalandi með liði sínu Wolfsburg þessa dagana.

„Ótrúlega skrítin stað sem við erum í, mér persónulega finnst mjög erfitt að vera ekki að æfa núna og spila úti í Þýskalandi með Wolfsburg þar sem við erum á miðju tímabili. En heilsan kemur fyrst,“ segir Sara Björk í myndbandi sem Knattspyrnusamband Íslands birti á facebookvef sínum í morgun.

„Ég hvet alla unga iðkendur til að halda áfram hreyfa sig og hugsa um mataræði, svefn og hvíld,“ sagði fyrirliðinn í hvetjandi skilaboðum til ungs knattspyrnufólks en myndbandið má sjá hér að neðan.

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands hef­ur hafið birt­ingu mynd­banda á sam­fé­lags­miðlum sín­um þar sem um er að ræða æf­ing­ar sem krakk­ar geta fram­kvæmt ein og sér eða í litl­um hóp­um, og hvatn­ing­ar­mynd­bönd þar sem landsliðsfólk hvet­ur iðkend­ur til að halda áfram að hreyfa sig og æfa reglu­lega.

Verk­efnið er kallað „Áfram Ísland“ og mynd­bönd­in munu birt­ast dag­lega á in­sta­gram- og face­booksíðum KSÍ en þau verður einnig að finna á youtu­besíðu sam­bands­ins.

mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert