Landsliðsmarkvörður á Stiga-sleða

Hannes Þór Halldórsson er 35 ára gamall.
Hannes Þór Halldórsson er 35 ára gamall. mbl.is/Hari

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands hef­ur hafið birt­ingu mynd­banda á sam­fé­lags­miðlum sín­um þar sem um er að ræða æf­ing­ar sem krakk­ar geta fram­kvæmt ein og sér eða í litl­um hóp­um, og hvatn­ing­ar­mynd­bönd þar sem landsliðsfólk hvet­ur iðkend­ur til að halda áfram að hreyfa sig og æfa reglu­lega.

Verk­efnið er kallað „Áfram Ísland“ og mynd­bönd­in munu birt­ast dag­lega á in­sta­gram- og face­booksíðum KSÍ en þau verður einnig að finna á youtu­be-síðu sam­bands­ins. Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson hvatti í dag fólk til þess að fara út að hreyfa sig, hvort sem það er í fótbolta eða bara út að ganga.

Hannes er samningsbundinn Val í úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildinni en KSÍ tilkynnti um miðjan mars að öllum leikjum á undirbúningstímabilinu yrði aflýst. Hannes skellti sér ásamt fjölskyldu sinni í göngutúr og þá lék landsliðsmaðurinn listir sýnar á Stiga-sleða sem er í miklu uppáhaldi hjá yngri kynslóðinni.

mbl.is

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert