Kvaddi AC Milan með góðum kveðjum

Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði sigurmark gegn Roma í sínum fyrsta …
Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði sigurmark gegn Roma í sínum fyrsta leik og var að vonum vel fagnað. Ljósmynd/@acmilan

Berglind Björg Þorvaldsdóttir landsliðskona í knattspyrnu kvaddi ítalska félagið AC Milan formlega í gær eftir að hafa dvalið þar frá áramótum í láni frá Breiðabliki.

Vegna kórónuveirunnar náði Berglind aðeins að spila fimm leiki með þessu fræga félagi en í þeim skoraði hún fimm mörk og vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína. Hún snýr nú heim til að spila með Breiðabliki.

Berglind sendi stuðningsfólki AC Milan kveðjur á Twitter og Instagram í gær:



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert