Knattspyrnusamband Íslands gaf í dag út leiðbeiningar fyrir æfingar meistaraflokka en þær eru byggðar á tilmælum heilbrigðisyfirvalda og almannavarna um sóttvarnaaðgerðir.
Þar kemur fram að markmið leiðbeininganna sé að lágmarka áhættuna á að leikmenn, starfsmenn og aðrir þátttakendur leiksins smitist af kórónuveirunni. Mikilvægasta vopnið sé þær almennu sóttvarnaaðgerðir sem embætti landlæknis og almannavarnir hafi kynnt ítarlega og þær séu jafn mikilvægar í kringum æfingar knattspyrnuliða og annars staðar í samfélaginu.
Meðal þess sem óskað er eftir er að leikmenn, starfsmenn liða og aðrir láti af þeim ósið að hrækja á völlinn og að markverðir hræki ekki í hanska sína.
Leiðbeiningarnar frá KSÍ í heild sinni:
KSÍ hefur gefið út leiðbeiningar fyrir æfingar meistaraflokka vegna sóttvarnaaðgerða heilbrigðisyfirvalda og almannavarna. Leiðbeiningarnar eru byggðar á tilmælum þessara aðila.
Leiðbeiningar fyrir framkvæmd leikja verða gefnar út á næstu dögum. Félög sem hyggjast leika æfingaleiki áður en leiðbeiningar um framkvæmd leikja eru gefnar út eru hvött til að gæta fyllstu varúðar og leita upplýsinga ef spurningar vakna.
Markmið leiðbeininganna er að lágmarka áhættuna á að leikmenn, starfsmenn liða, starfsmenn félaga og aðrir þátttakendur leiksins smitist af COVID-19, og gilda þar til annað verður ákveðið.
Mikilvægasta vopn samfélagsins gegn COVID-19 eru þær almennu sóttvarnaaðgerðir sem embætti landlæknis og almannavarnir hafa kynnt ítarlega síðustu vikurnar. Þessar almennu aðgerðir eru jafn mikilvægar í kringum æfingar knattspyrnuliða og annars staðar í samfélaginu.
Áhersla er lögð á að hver og einn beri ábyrgð á eigin athöfnum og að: „Við erum öll almannavarnir“. Rekstraraðilar íþróttamannvirkja eru beðnir að skrá hjá sér hversu mörgum gestum þeir geta tekið á móti og skoða sérstaklega flöskuhálsa svo sem fataskiptiklefa. Þar er nálægðin mest.
KSÍ hvetur alla sem koma að æfingum meistaraflokka til að temja sér þessar aðgerðir sérstaklega.
Líkt og nefnt er hér á undan eru almennar sóttvarnaaðgerðir besta vopnið gegn COVID 19. Forráðamenn félaga, þjálfara og aðrir starfsmenn liða eru ábyrgir fyrir því að reglum sé fylgt.
Auk þeirra almennu aðgerða sem nefndar eru hér á undan er mælt með eftirfarandi aðgerðum: