Jafnt í miklum markaleik í Kópavogi

Valur og Breiðablik mættust í skemmtilegum leik í kvöld.
Valur og Breiðablik mættust í skemmtilegum leik í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Breiðablik og Valur mættust í æfingaleik í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Eftir mikið fjör urðu lokatölur 3:3 þar sem tveir danskir framherjar stálu senunni. 

Varnarmaðurinn Orri Sigurður Ómarsson kom Valsmönnum yfir á 10. mínútu en aðeins korteri síðan var Thomas Mikkelsen búinn að skora tvö mörk og koma Breiðabliki í 2:1. 

Eftir það var komið að Patrick Pedersen í framlínu Valsmanna. Pedersen jafnaði með marki á 35. mínútu og á 65. mínútu bætti hann við sínu öðru marki og þriðja marki Valsmanna.

Breiðablik átti hins vegar lokaorðið þar sem Kwame Quee jafnaði í uppbótartíma og þar við sat. Mættust liðin í Bose-mótinu í vetur og enduðu þá leikar sömuleiðis 3:3. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert