Nýr markvörður í FH

Telma Ívarsdóttir
Telma Ívarsdóttir Ljósmynd/FH

FH hefur fengið knattspyrnumarkvörðinn Telmu Ívarsdóttir til liðs við sig tímabundið en hún lék með Augnabliki í 1. deildinni í fyrra.

Telma á 63 meistaraflokksleiki fyrir Fjarðabyggð, Grindavík, Hauka og Augnablik en hún er á 21. aldursári. Þá spilaði hún fjölmarga leiki með yngri landsliðum Íslands. Telma var á milli stanganna í liði FH sem tapaði 1:0 gegn Keflavík í æfingaleik í gærkvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert