Sú áttunda á að skora mörkin

ÍBV verður með mikið breytt lið í ár og átta …
ÍBV verður með mikið breytt lið í ár og átta erlenda leikmenn. mbl.is/Golli

Kvennalið ÍBV hefur bætt við sig bandarískum framherja fyrir baráttuna á Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar og mun þar með tefla fram átta erlendum leikmönnum.

Miyah Watford er nýjasti liðsmaður ÍBV en hún er 21 árs gömul, bandarískur framherji frá Indianapolis, sem átti góðan feril með háskólaliðinu Murray State Racers þar sem hún skoraði 31 mark og átti 14 stoðsendingar í 55 leikjum, og var margverðlaunuð fyrir frammistöðu sína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert