5. sæti kvenna: Stjarnan

Jasmín Erla Ingadóttir lék sem lánsmaður með kýpversku meisturunum Apollon …
Jasmín Erla Ingadóttir lék sem lánsmaður með kýpversku meisturunum Apollon Limassol í vetur en er komin aftur til Stjörnunnar. mbl.is/Þórir Tryggvason

Stjörnunni er spáð fimmta sætinu í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu árið 2020 í spá Árvakurs sem birt var í Morgunblaðinu á þriðjudaginn.

Stjarnan hafnaði í fimmta sæti á síðasta tímabili en félagið varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og þrisvar bikarmeistari á árunum 2011 til 2016. Þjálfari liðsins er Kristján Guðmundsson og hann er á sínu öðru tímabili í Garðabænum.. 

Í Morgunblaðinu í dag, 11. júní, er fjallað um lið Stjörnunnar og möguleika þess á komandi keppnistímabili.

Stjarnan sækir Þór/KA heim til Akureyrar í fyrstu umferð deildarinnar á laugardaginn kemur, 13. júní, spilar síðan gegn FH á heimavelli 18. júní og gegn ÍBV á útivelli í þriðju umferðinni 24. júní.

Lið Stjörnunnar 2020 - númer, nafn, fæðingarár, leikir/mörk í efstu deild:

MARK:
  1 Birta Guðlaugsdóttir - 2001 - 16/0
12 Birna Dís Eymundsdóttir - 2004 - 0/0

VÖRN:
  3 Arna Dís Arnþórsdóttir - 1997 - 61/0
  4 Katrín Ósk Sveinbjörnsdóttir - 2001 - 5/0
10 Anna María Baldursdóttir - 1994 - 142/2
15 Katrín Mist Kristinsdóttir - 1999 - 0/0
16 Sædís Rún Heiðarsdóttir - 2004 - 0/0
21 Hanna Sól Einarsdóttir - 2003 - 1/0
22 Elín Helga Ingadóttir - 2000 - 4/0
24 Sonja Lind Sigsteinsdóttir - 2004 - 2/0
28 Sylvía Birgisdóttir - 2001 - 0/0

MIÐJA:
  5 Hrefna Steinunn Aradóttir - 2003 - 0/0
  8 Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir - 1998 - 51/2
11 Betsy Hassett - 1990 - 38/3
18 Jasmín Erla Ingadóttir - 1998 - 75/16
20 Lára Mist Baldursdóttir - 1998 - 1/0
23 Gyða Kristín Gunnarsdóttir - 2001 - 4/0
33 Klara Mist Karlsdóttir - 2003 - 0/0

SÓKN:
  2 Hugrún Elvarsdóttir - 1994 - 58/10
  6 Aníta Ýr Þorvaldsdóttir - 2003 - 10/2
  7 Shameeka Fishley - 1993 - 23/5
  9 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir - 2003 - 10/6
13 Helga Guðrún Kristinsdóttir - 1997 - 32/3
14 Snædís María Jörundsdóttir - 2004 - 4/0
17 María Sól Jakobsdóttir - 1999 - 41/3
19 Birna Jóhannsdóttir - 2001 - 28/4
37 Jana Sól Valdimarsdóttir - 2003 - 9/2

Komnar:
  6.6. Hugrún Elvarsdóttir frá FH (lék síðast 2018)
  5.6. Jasmín Erla Ingadóttir frá Apollon Limassol (Kýpur) (úr láni)
13.3. Betsy Hassett frá KR
2.3. Sylvía Birgisdóttir frá Álftanesi
22.2. Sædís Rún Heiðarsdóttir frá Víkingi Ó.
10.12. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir frá ÍBV
16.10. Helga Guðrún Kristinsdóttir frá Grindavík (úr láni)
16.10. Katrín Mist Kristinsdóttir frá Haukum (úr láni)
16.10. Lára Mist Baldursdóttir frá Haukum (úr láni)

Farnar:
12.6. Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir í Fylki
11.3. María Eva Eyjólfsdóttir
 í Fylki
22.2. Diljá Ýr Zomers í Val
8.1. Camille Bassett í Zaragoza (Spáni)
26.9. Jasmín Erla Ingadóttir í Apollon Limassol (Kýpur) (lán)
Edda María Birgisdóttir, hætt
Sigrún Ella Einarsdóttir, barneignarfrí
Sóley Guðmundsdóttir, hætt
Viktoría Valdís Guðrúnardóttir, hætt
Berglind Hrund Jónasdóttir, hætt

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert