Hópurinn stækkar hjá Fylki

Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir í leik með unglingalandsliði Íslands.
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir í leik með unglingalandsliði Íslands. mbl.is/Árni Sæberg

Fylkir hefur styrkt enn frekar hóp sinn fyrir baráttuna á Íslandsmóti kvenna í knattspyrnu í sumar og fengið til sín varnarmanninn Kolbrúnu Tinnu Eyjólfsdóttur frá Stjörnunni.

Kolbrún Tinna er tvítug og á að baki sex ár í meistaraflokki með Fjölni, Haukum og Stjörnunni. Hún hefur leikið 23 leiki í efstu deild og skorað eitt mark og þá á Kolbrún að baki 24 leiki með yngri landsliðum Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert