Framherji í Hafnarfjörðinn

FH-ingar fagna sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
FH-ingar fagna sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. mbl.is//Hari

Knattspyrnukonan Madison Gonzalez er gengin til liðs við FH en þetta kemur fram á Facebook-síðu félagsins. Gonzales er 23 ára gamall framherji en hún mun leika með liðinu í úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildinni, á komandi keppnistímabili.

Hún lék síðast með háskólaliði Santa Clara í bandaríska háskólaboltanum en skólinn er staðsettur í Kaliforníu. „Madison kemur til með styrkja liðið í þeim átökum sem framundan eru í Pepsí Max deildinni og við bjóðum hana velkomna í FH,“ segir í tilkynningu Hafnfirðinga.

Gonzalez er sjötti leikmaðurinn sem kemur til félagsins fyrir sumarið en fyrir höfðu þær Andrea Mist Pálsdóttir, Telma Ívarsdóttir, Hrafnhildur Hauksdóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir og Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir allar skrifað undir samninga við FH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert