„Það eru margar tilfinningar í gangi núna og ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja,“ sagði Ágúst Gylfason, þjálfari Gróttu, eftir ótrúlegt 4:4-jafntefli gegn HK í Pepsi Max-deildinni á Seltjarnarnesi í dag.
Stigið er það fyrsta sem Grótta fær í efstu deild og mörkin sömuleiðis þau fyrsti. „Við skorum okkar fyrstu mörk og fáum okkar fyrsta stig. Það var darraðardans í báðar áttir í þessum leik. Við gerum vel og komumst í 2:0 og mjög þægilega stöðu og með fulla stjórn á leiknum en þá fáum við þetta víti á okkur og missum mann út af. Þá þurftum við að breyta til og fara í öðruvísi skipulag,“ sagði Ágúst en Grótta komst í 2:0, áður en Patrik Orri Pétursson fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 37. mínútu og HK minnkaði muninn úr víti.
HK byrjaði síðan seinni hálfleikinn á að jafna í 2:2. „Það fór dálítið um mann í stöðunni 2:2 en við sýnum gríðarlegan styrk í seinni hálfleik þar sem við skorum úr föstu leikatriði og góðri skyndisókn. Fyrstu tvö mörkin okkar komu eftir frábærlega vel útfærðar sóknir og það er skrítin tilfinning að fá bara eitt stig út úr þessu,“ sagði Ágúst, en tíu Grótumenn komust í 4:2, áður en HK jafnaði í 4:4.
„Maður þarf að vera rólegur á hliðarlínunni og halda haus. Mér fannst við gera það vel en á vellinum var þetta darraðardans og átta mörk. Stuðningsmennirnir hjálpuðu okkur í öll þessu hlaup og vinnusemin skilar okkur þessu eina stigi.“
Ágúst kvartaði lítið yfir rauða spjaldinu sem Patrik fékk, en hann var ósáttur við jöfnunarmark HK þar sem Ásgeir Börkur Ásgeirsson fékk boltann mögulega í hendina í aðdragandanum. „Ef hann fær boltann í hendina er þetta annað gult spjald og ekkert annað. Þetta er vendipunkturinn í leiknum. Það er svo högg í magann að fá þetta mark á sig þegar það er verið að tala um hendi,“ sagði Ágúst.