Sjö mörk á fyrstu 38 mínútunum

Davíð Snær Jóhannsson skoraði eitt marka Keflvíkinga í kvöld.
Davíð Snær Jóhannsson skoraði eitt marka Keflvíkinga í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Suðurnesjaliðin Grindavík og Keflavík skildu jöfn í ótrúlegum markaleik, 4:4, í 1. deild karla í knattspyrnu, Lengjudeildinni, í Grindavík í kvöld en sjö mörk voru skoruð á fyrstu 38 mínútum leiksins.

Grindvíkingar voru komnir í 4:2 eftir 25 mínútna leik en Keflvíkingar löguðu stöðuna fyrir hlé og Ástralinn Joey Gibbs jafnaði loks skömmu fyrir leikslok með sínu öðru marki í leiknum. 

Auk Gibbs skoruðu Davíð Snær Jóhannsson og Helgi Þór Jónsson fyrir Keflvíkinga en fyrir Grindavík skoraði Sigurður Bjartur Hallsson tvö mörk, Oddur Ingi Bjarnason og Josip Zeba sitt markið hvor.

Grindavík og Keflavík eru bæði komin með sjö stig eftir fjórar umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert