Fyrirliðinn viðbeinsbrotnaði á Akureyri

Elmar Atli Garðarsson er viðbeinsbrottinn.
Elmar Atli Garðarsson er viðbeinsbrottinn. Ljósmynd/Vestri

Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði knattspyrnuliðs Vestra, slasaðist í leik liðsins við Þór Akureyri á útivelli í gær. Nú er komið í ljós að Elmar er viðbeinsbrotinn.

Elmar lenti í samstuði við Jónas Björgvin Sigurbergsson, leikmann Þórs, og lá eftir. Verður hann frá keppni í 6-8 vikur vegna meiðslanna en það staðfesti hann við Fótbolta.net

Vestri vann óvæntan 1:0-sigur, þrátt fyrir að Vladimir Tufegdzic hafi fengið beint rautt spjald á 50. mínútu. Er liðið með fjögur stig í áttunda sæti í Lengjudeildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert