Ummælin áttu ekki að vera rasísk

Atli Steinar Ingason er sakaður um kynþáttaníð í garð Gunnar …
Atli Steinar Ingason er sakaður um kynþáttaníð í garð Gunnar Jökuls Johns í leik Skallagríms og Berserkja á föstudaginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Atli Steinar Ingason, leikmaður Skallagríms í 4. deild karla í knattspyrnu, sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi vegna atviks sem átti sér stað í leik Skallagríms og Berserkja í 4. deildinni í Borgarnesi á föstudaginn síðasta. Atli Steinar er sakaður um kynþáttaníð í garð Gunnars Jökuls Johns, leikmanns Berserkja en það var Einar Guðnason, aðstoðarþjálfari Víkinga sem greindi fyrst frá atvikinu á Twitter.

Atli Steinar ítrekar að ummæli hans hafi ekki að neinu leyti átt að vera rasísk þó þau hafi verið túlkuð á þann veg, m.a af fjölmiðlum. Þá er Atli Steinar ósáttur með framgang fjölmiðla í málinu og bendir á að þeir hafi ekki kynnt sér allar hliðar málsins nægilega vel né haft samband við hann sjálfan til þess að heyra hans hlið á atvikinu. Yfirlýsingu Atla má lesa hér en hún birtist fyrst á fótbolti.net.

Yfirlýsingi Atla Steinars:

Í knattspyrnuleik Skallagríms og Berserkja föstudaginn 10. júlí sl. lét ég óviðeigandi ummæli falla í garð leikmanns Berserkja. Þau ummæli áttu engan rétt á sér þó þau væru sögð í hita leiksins. Það skal jafnframt tekið fram að af minni hálfu þá áttu þessi ummæli ekki að vera rasísk að neinu leyti þó þau hafi verið túlkuð á þann veg m.a. af fjölmiðlum.

Ég get ekki annað gert en stigið fram, viðurkennt mín mistök og beðist afsökunar á þessum ummælum og bætt ráð mitt. Ég hef mikið keppnisskap og það hefur stundum verið mér fjötur um fót og því hef ég leitað til sérfræðinga síðustu mánuði til þess að fá hjálp og mun gera það áfram.

Enda afsakar mikið keppnisskap ekki óviðeigandi framkomu eða ummæli í garð andstæðinga, dómara en annarra sem að íþróttum koma. Ég ítreka enn og aftur að ég biðst innilegrar afsökunar á ummælum mínum og vona að þeir sem hlut eiga að máli taki það til greina.

Það skal einnig tekið fram að ég einn er ábyrgur fyrir ummælum mínum og hegðun og ég mun taka afleiðingunum og gera allt sem í mínu valdi stendur til að bæta ráð mitt.

Ég vil að lokum vekja athygli á því að mér hefur fundist ósanngjarnt að fjölmiðlar og fleiri hafa treyst sér til að fjalla um málið eða hafa í frammi ummæli um það án þess að hafa haft samband við mig eða kynnt sér málið frá öllum hliðum.

Virðingarfyllst
Atli Steinar Ingason

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert