Landsliðskona í raðir FH

FH er komið með liðsstyrk.
FH er komið með liðsstyrk. mbl.is/Árni Sæberg

Knattspyrnudeild FH og hin 26 ára gamla Phoenetia Browne hafa gert samkomulag um að hún leiki með liðinu það sem eftir lifir sumars. Browne þekkir vel til á Íslandi en hún skoraði tíu mörk í sextán leikjum með Sindra í 1. deildinni árið 2017. 

Brown, sem er framherji, lék síðast með Åland United frá Álandseyjum í efstu deild Finnlands. Er hún fædd í New York í Bandaríkjunum en hún hefur leikið með landsliði Sankti Kitts og Nevis, eyríkis í Karíbahafi, og verið dugleg við markaskorun. 

FH veitir ekki af liðsstyrk þar sem liðið er í neðsta sæti Pepsi Max-deildarinnar með aðeins þrjú stig eftir átta leiki og einn sigur. Hefur liðið aðeins skorað þrjú mörk og fengið á sig sautján. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert