Knattspyrnudeild HK hefur gengið frá lánssamningi við danska miðvörðinn Martin Rauschenberg frá Stjörnunni og verður hann hjá Kópavogsliðinu út tímabilið.
Rauschenberg, sem er 28 ára, varð Íslandsmeistari með Stjörnunni 2014. Þá hefur hann einnig leikið í Danmörku og Svíþjóð en hann lék með sænsku liðunum Brommapojkarna og Gefle eftir fyrri dvölina hjá Stjörnunni. Daninn hefur ekkert spilað með Stjörnunni í Pepsi Max-deildinni í leiktíðinni og aðeins komið við sögu í einum bikarleik. Á síðasta tímabili lék hann hinsvegar 19 leiki með Garðabæjarliðinu í deildinni.
Hefur Rauschenberg alls leikið 61 leik í efstu deild hér á landi og skorað í þeim tvö mörk. HK er í níunda sæti Pepsi Max-deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsætin. HK mætir Fjölni á heimavelli á sunnudaginn kemur.