Áhorfendur leyfðir á ný

Stuðningsmenn geta skellt sér á völlinn í kvöld.
Stuðningsmenn geta skellt sér á völlinn í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

Eftir samráð við sóttvarnayfirvöld hefur KSÍ ákveðið að leyfa áhorfendur á leikjum í öllum flokkum og á öðrum viðburðum á vegum KSÍ í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Ákvörðunin tekur strax gildi og nær því til þeirra leikja sem fara fram í dag, mánudag.

Frekari útfærslur varðandi áhorfendafjölda munu koma fram í leiðbeiningum frá ÍSÍ, sem gefnar verða út síðar í dag. Voru engir áhorfendur leyfðir á leikjum sambandsins um helgina.

Búast má við að í leiðbeiningum ÍSÍ komi fram að börn fædd 2005 og síðar skuli talin með í áhorfendafjölda og að sérsamband (KSÍ) fái til staðfestingar frá félögum sínum áætlaðan fjölda í hverju hólfi/áhorfendasvæði og að í hverju hólfi séu að hámarki 200 manns (börn fædd 2005 og síðar þar með talin).

Fimm leikir eru á dagskrá í Pepsi Max-deild karla í kvöld og fjórir í Lengjudeild karla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert