Keflavík náði í kvöld fjögurra stiga forskoti á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta, 1. deild. Gerðu Keflvíkingar góða ferð á Ísafjörð og unnu Vestra, 3:1.
Vestri byrjaði betur og Spánverjinn Nacho Gill skoraði fyrsta markið á 16. mínútu og var staðan í hálfleik 1:0. Keflavík var hinsvegar mun sterkari aðilinn í seinni hálfleik.
Tristan Freyr Ingólfsson jafnaði á 53. mínútu með sínu fyrsta marki fyrir Keflavík og Ástralinn Joey Gibbs kom gestunum yfir á 66. mínútu með sínu 21. marki í deildinni og er hann langmarkahæstur.
Keflavík gulltryggði þrjú stig í uppbótartíma þegar varamaðurinn Helgi Þór Jónsson skoraði þriðja markið og þar við sat.
Er Keflavík með 37 stig eftir 17 leiki, fjórum stigum á undan Leikni úr Reykjavík og Fram sem eru með 33 stig. Vestri er í sjöunda sæti með 26 stig.
Staðan: