Knattspyrnumaðurinn Nökkvi Þeyr Þórisson leikur ekki meira með KA á þessu keppnistímabili eftir að hafa ristarbrotnað í annað sinn á þessu tímabili í gær.
Nökkvi staðfesti þetta við Fotbolti.net í dag en hann verður tvo til þrjá mánuði að jafna sig. Hann þurfti að fara af velli snemma leiks gegn Gróttu í gær.
Það sama gerðist í júní, eftir að Nökkvi hafði verið í byrjunarliði KA í tveimur fyrstu leikjum Íslandsmótsins og skorað eitt mark. Hann missti í framhaldi af því af næstu sex leikjum Akureyrarliðsins í deildinni en hefur síðan spilað sjö leiki af átta og var í fyrsta skipti á nýjan leik í byrjunarliðinu í gær.
Svo einkennilega vildi til þegar Nökkvi slasaðist í fyrra skiptið að tvíburabróðir hans, Þorri Mar, sem einnig leikur með KA, ristarbrotnaði á nákvæmlega sama stað á sama tíma. Hann er nýkominn inn í hópinn hjá KA eftir það og hefur komið við sögu í tveimur leikjum.