Smit hjá Þórs/KA

Leikmaður Þórs/KA er með kórónuveiruna.
Leikmaður Þórs/KA er með kórónuveiruna. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Leikmaður knattspyrnuliðs Þórs/KA er með kórónuveiruna en þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum sínum í morgun.

Samkvæmt fréttatilkynningu Þórs/KA æfði leikmaðurinn sem er smitaður með liðinu á föstudaginn síðasta en fór að finna fyrir einkennum veirunnar um nýliðna helgi.

Hún fór í próf í gær og reyndist niðurstaðan jákvæð og eru nú allir leikmenn liðsins komnir í úrvinnslusóttkví.

Þór/KA á að mæta KR hinn 8. nóvember næstkomandi í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, en stefnt er að því að deildin hefjist að nýju í nóvember eftir rúmlega mánaðar hlé.

Liðið er í sjöunda sæti deildarinnar með 18 stig, 2 stigum frá fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert