Verður áfram í Grafarvogi

Sigurpáll Melberg Pálsson
Sigurpáll Melberg Pálsson Haraldur Jónasson/Hari

Knattspyrnumaðurinn Sigurpáll Melberg Pálsson hefur framlengt samning sinn við Fjölni til ársins 2022. 

„Sigurpáll er öflugur varnarmaður með mikla reynslu en hann hefur leikið 121 leik og skorað 5 mörk,“ segir í tilkynningu á heimasíðu Fjölnis.

„Þetta eru mikil gleðitíðindi en Sigurpáll hefur staðið sig vel síðan hann kom til liðs við Fjölni fyrir tímabilið 2018 og verið einn af lykilleikmönnum liðsins undanfarin tvö ár. Knattspyrnudeild Fjölnis óskar Sigurpáli til hamingju og væntir mikils af honum.“

Sigurpáll, sem er 24 ára, hefur einnig leikið með HK, Fram og Aftureldingu. Tímabilið hjá Fjölni hefur verið erfitt og er liðið með sex stig í botnsæti Pepsi Max-deildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert