Jóhann leikur hundraðasta leikinn

Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliðinu hjá Burnley.
Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliðinu hjá Burnley. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Jóhann Berg Guðmundsson er í byrjunarliði Burnley sem mætir Crystal Palace á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en flautað verður til leiks klukkan 17:30.

Leikurinn er sá hundraðasti hjá Jóhanni í úrvalsdeildinni og hafa þeir allir komið fyrir Burnley en hann kom til félagsins frá Charlton árið 2016. 

Íslenski kantmaðurinn hefur glímt við meiðsli á leiktíðinni og aðeins verið í byrjunarliðinu í ensku úrvalsdeildinni í tvígang vegna þessa, en hann hefur nú jafnað sig á meiðslunum.

Burnley hefur farið afar illa af stað á leiktíðinni og er liðið án sigurs eftir sjö leiki og aðeins með tvö stig og aðeins skorað þrjú mörk. Crystal Palace er í níunda sæti með 13 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert