Jón Stefán hættur með Tindastól

Jón Stefán Jónsson.
Jón Stefán Jónsson. Ljósmynd/N4

Jón Stefán Jónsson, annar þjálfara kvennaliðs Tindastóls í knattspyrnu, hefur sagt starfi sínu lausu. Ástæðuna segir hann vera þá að hann geti ekki verið búsettur á Sauðárkróki allan ársins hrings vegna dagvinnu sinnar.

Tindastóll sigraði Lengjudeild kvenna í haust og komst þá upp í efstu deild, Pepsi Max-deildina, í fyrsta skipti í sögunni. Jón Stefán þjálfaði liðið ásamt Guðna Þór Einarssyni.

„Eftir þrjú ár af ótrúlegum ævintýrum finnst mér kominn tími til að láta staðar numið. Mér finnst mikilvægt að stelpurnar okkar fái þjálfara sem getur verið búsettur á Króknum og þar sem algjörlega útséð er um það vegna vinnu minnar þá ákvað ég að setja hagsmuni stelpnanna framar mínum eigin,“ segir Jón Stefán í yfirlýsingu.

„Það er ekkert smá erfitt að skilja við stelpurnar á þessum tímapunkti, bæði vegna þess að ég er sannfærður um að ævintýri þeirra og Tindastóls í efstu deild sé bara rétt að byrja og vegna þess að það hefur verið draumur minn að þjálfa í efstu deild sem aðalþjálfari,“ bætir hann við.

Jón Stefán þakkar leikmönnum og aðstandendum liðsins fyrir tímann og nefnir Guðna Þór meðþjálfara sinn þar sérstaklega. „Guðna þakka ég ómetanlegt samstarf en við höfum bundist órjúfanlegum vinaböndum til lífstíðar.“

Í yfirlýsingu frá Tindastóli er Jóni Stefáni þakkað fyrir ómetanlegt starf og greint frá því að leit að eftirmanni hans sé þegar hafin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert