Penninn á lofti á Selfossi

Magdalena Anna Reimus verður áfram í herbúðum Selfyssinga næstu tvö …
Magdalena Anna Reimus verður áfram í herbúðum Selfyssinga næstu tvö árin. Ljósmynd/Selfoss

Knattspyrnukonan Magdalena Anna Reimus hefur framlengt samning sinn við Selfoss til næstu tveggja ára en þetta kom fram á samfélagsmiðlum félagsins í morgun.

Magdalena, sem er 25 ára gömul, kom til Selfyssinga frá uppeldisfélagi sínu Hetti á Egilsstöðum fyrir tímabilið 2015.

Hún á að baki 85 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað 17 mörk. Þá varð hún bikarmeistari með Selfyssingum síðasta sumar.

„Það eru frábærar fréttir fyrir Selfoss að Magda hafi framlengt samninginn sinn. Hún er einn af máttarstólpum liðsins og hefur reynst okkur ótrúlega vel síðustu ár,“ sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss.

„Hún getur spilað nánast allar stöður og það er gríðarlega sterkt fyrir okkur að hafa hana áfram í okkar liði,“ bætti Alfreð við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert