Framlengir í Garðabænum

Þorsteinn Már Ragnarsson verður áfram hjá Stjörnunni.
Þorsteinn Már Ragnarsson verður áfram hjá Stjörnunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Þorsteinn Már Ragnarsson hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna um tvö ár. Þorsteinn var samningslaus eftir síðasta tímabil en heldur kyrru í Garðabænum.

„Við fögnum því innilega að hafa Steina hjá okkur áfram og teljum að hann eigi mikið inni," ef haft eftir Helga Hrannarr, formanni meistaraflokksráðs karla hjá Stjörnunni.

Þorsteinn er þrítugur sóknarmaður sem kom til Stjörnunnar frá Víkingi Ólafsvík fyrir tímabilið 2018. Hann hefur skorað tíu mörk í 64 leikjum með Stjörnunni og alls 30 mörk í 163 leikjum í efstu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert