Fylkir fær liðsstyrk úr Hafnarfirði

Helena Ósk Hálfdánardóttir í leik með FH.
Helena Ósk Hálfdánardóttir í leik með FH. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Úrvalsdeildarlið Fylkis hefur fengið liðsstyrk fyrir næsta tímabil í knattspyrnunni en Helena Ósk Hálfdánardóttir er gengin til liðs við félagið. 

Helena kemur frá FH og hefur leikið með liðinu undanfarin ár þótt hún sé einungis tvítug að aldri. Hefur hún leikið 77 leiki fyrir FH og skorað 15 mörk. 

Helena á að baki 23 leiki með yngri landsliðum Íslands. Fylkir greindi frá félagaskiptunum á samfélagsmiðlum í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert