Leikur áfram með KA á næsta ári

Steinþór Freyr Þorsteinsson í leik gegn Íslandsmeisturum Vals.
Steinþór Freyr Þorsteinsson í leik gegn Íslandsmeisturum Vals. mbl.is/Arnþór Birkisson

Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur gert nýjan samning við KA og leikur með liðinu í úrvalsdeild Íslandsmótsins í knattspyrnu næsta sumar. 

Steinþór er 35 ára og kom til KA fyrir keppnistímabilið árið 2016. Hefur því leikið fjögur tímabil með liðinu og líðar lífið greinilega vel á Akureyri. 

Það er afar jákvætt skref að halda Steinþóri áfram innan okkar raða en auk þess að vera öflugur leikmaður er hann frábær liðsmaður auk þess að vera flott fyrirmynd fyrir hina fjölmörgu ungu leikmenn okkar og mun halda áfram að miðla sinni miklu reynslu til þeirra,“ segir meðal annars á heimasíðu KA. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert