Grindvíkingar þurfa að sjá á eftir fyrirliða karlaliðsins í knattspyrnu því Gunnar Þorsteinsson er á leið erlendis og ætlar ekki að leika á næsta keppnistímabili.
Í færslu á Facebooksíðu Grindavíkur kemur fram að Gunnar ætli að taka sér frí frá knattspyrnuiðkun á næsta ári.
Gunnar er á leið í nám á nýju ári í auðlindaverkfræði við hinn kunna Columbia-háskóla í New York.
Gunnar er 26 ára gamall og hefur verið lykilmaður í liði Grindavíkur síðustu árin.